Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 11. febrúar 2018 16:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho: Þeir börðust eins og villidýr
Mynd: Getty Images
„Þeir börðust eins og villidýr," sagði Jose Mourinho eftir 1-0 tap Manchester United gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Mourinho segir að fótboltaguðirnir hafi verið með Newcastle í liði.

„Ég vona að þeir taki því sem ég segi sem hrósi. Fótboltaguðirnir voru með þeim í liði í dag," sagði Mourinho.

„Þetta féll ekki með okkur. Newcastle gaf allt sem það hafði og hafði ekki, það er það fallega í fótboltanum."

„Þeir börðust fyrir stigi, þeir ætluðu sér að fá stig. Við gerðum varnarmistök og þegar þeir komast yfir þá hugsa þeir bara um eitt, að gera allt mögulegt til að halda hreinu."
Athugasemdir
banner
banner