Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 11. febrúar 2018 16:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Smalling dýfði sér og Newcastle refsaði
Smalling var spjaldaður.
Smalling var spjaldaður.
Mynd: Getty Images
Chris Smalling gerðist sekur um slæm mistök í tapi Manchester United gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Smalling ákvað að dýfa sér á miðjum vellinum um miðjan seinni hálfleikinn. Dómarinn sá að um leikaraskap var að ræða og spjaldaði miðvörðinn fyrir þessi tilbrigði hjá honum.

Leikmönnum Newcastle var ekki skemmt og ákváðu þeir að refsa fyrir leikaraskapinn með því að skora í næstu sókn.

Matt Ritchie skoraði markið með góðu skoti eftir að boltinn hafði dottið fyrir hann í teignum stuttu eftir leikaraskapinn hjá Smalling.

Leikmenn United reyndu hvað þeir gátu að jafna en það tókst ekki.

Smelltu hér til að sjá dýfuna hjá Smalling.







Athugasemdir
banner
banner