Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. október 2017 09:30
Magnús Már Einarsson
Ísland í efsta flokki í Þjóðadeildinni - Stórleikir framundan
Icelandair
Ísland fær stórlið í heimsókn á Laugardalsvöll.
Ísland fær stórlið í heimsókn á Laugardalsvöll.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Ísland verður á meðal tólf þjóða í A-deildinni í Þjóðadeildinni sem hefur göngu sína á næsta ári. Því er ljóst að stórar þjóðir koma á Laugardalsvöll á næsta ári. Þrjú lið eru í riðli en riðillinn fer fram næsta haust.

Dregið verður í riðla í Sviss þann 24. janúar næstkomandi.

Þegar keppnin er farin af stað verður hægt að komast upp úr deildum og falla úr þeim. Staðan í Þjóðadeildinni mun svo úrskurða um niðurröðun fyrir undankeppni EM og HM í framtíðinni.

Þá er hægt að vinna sér inn sæti í lokakeppni EM í gegnum Þjóðadeildin.

A-deild (liðum skipt í fjóra þriggja liða riðla)
Þýskaland, Portúgal, Belgía, Spánn, Frakkland, England, Sviss, Ítalía, Pólland, Ísland ,Króatía og Holland.


Lestu nánar um Þjóðadeildina hér að neðan
Hvers vegna hefur Þjóðadeildin göngu sína?
Vináttulandsleikir eru ekki taldir bjóða upp á nægilega keppni. UEFA vill auka veg og virðingu landsliðsfótbolta með þessum hætti. Fyrsta hugmyndin að Þjóðadeildinni kom upp 2011 og hefur deildin verið í þróun síðan.

Hvenær er keppt í Þjóðadeildinni?
Riðlakeppnin verður leikin á þremur stökum leikvikum. Leikið verður í september, október og nóvember 2018.

Liðin fjögur sem vinna sína riðla í A-deildinni leika í úrslitakeppni í júní 2019. Undanúrslitaleikir og úrslitaleikur þar sem Þjóðadeildameistarinn verður krýndur. Dregið er í undanúrslitin og stjórn UEFA ákveður leikvanga.

Mun kerfið í undankeppni EM breytast?
20 lið munu komast á lokakeppni EM í gegnum undankeppni EM en fjögur sæti fást í gegnum Þjóðadeildina, eitt í hverri deild hennar.

Fjögur lið úr hverri deild fara í undanúrslit og úrslit um hvert sæti í mars 2020. Ef lið sem vinnur deildina hefur þegar tryggt sér sæti á EM mun það lið fyrir neðan sem á ekki öruggt sæti koma í staðinn.

Hvað græða liðin og samböndin á þessu nýja fyrirkomulagi?
Fleiri landsleikir sem skipta miklu máli. Til verður nýr titill landsliða. Getuskiptingin gerir það að verkum að fleiri jafnir landsleikir verða spilaðir. Sjónvarpsrétturinn af Þjóðadeildinni verður seldur í einum pakka sem tryggir knattspyrnusamböndum öruggari tekjur.

Fyrir smærri þjóðir býr þetta til aukamöguleika á að komast í lokakeppnina. Eitt lið úr D-deildinni, eitt af sextán lökustu liðunum, mun komast í lokakeppnina.

Mun þetta þýða meira leikjaálag?
Nei. Þjóðadeildin er sett í sömu landsleikjaglugga og nú eru samþykktir.

Verða ekki fleiri vináttulandsleikir?
Vináttulandsleikjum mun fækka umtalsvert. Það verður þó enn pláss fyrir vináttulandsleiki, til dæmis undirbúningsleikir fyrir stórmót. UEFA vill líka að þjóðir í Evrópu eigi enn möguleika á að mæta andstæðingum frá öðrum heimsálfum.

Sjá einnig:
Laugardalsvöllur - Hver dagur skiptir máli
Athugasemdir
banner
banner
banner