Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 12. febrúar 2018 21:54
Magnús Már Einarsson
England: Hazard létti pressunni á Conte
Giroud og Hazard fagna marki í kvöld.
Giroud og Hazard fagna marki í kvöld.
Mynd: Getty Images
Chelsea 3 - 0 West Brom
1-0 Eden Hazard ('25 )
2-0 Victor Moses ('63 )
3-0 Eden Hazard ('71 )

Chelsea endurheimti fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni með öruggum 3-0 sigri á botnliði WBA í kvöld. Sigurinn léttir pressunni á Antonio Conte stjóra Chelsea en hann hefur verið mikil til umræðu undanfarna daga.

Eden Hazard skoraði tvívegis fyrir Chelsea í kvöld og lagði grunninn að sigrinum. Hazard kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik eftir spil með Olivier Giroud.

Victor Moses kom Chelsea í 2-0 eftir rúman klukkutíma en skömmu áður hafði Salomon Rondon farið illa með gott færi fyrir WBA. Hazard bætti síðan við öðru marki sínu og þriðja marki Chelsea áður en yfir lauk.

Chelsea er eftir leikinn stigi á undan Tottenham í 4. sætinu en WBA er á botninum, sjö stigum frá öruggu sæti. Það þarf því mikið að breytast ef WBA ætlar að ná að bjarga sæti sínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner