Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 12. nóvember 2014 17:30
Elvar Geir Magnússon
Mascherano og Tevez aftur á Upton Park
Tevez og Mascherano snúa aftur á Upton Park.
Tevez og Mascherano snúa aftur á Upton Park.
Mynd: Getty Images
Fyrir átta árum fékk West Ham þá Carlos Tevez og Javier Mascherano til félagsins í afar umtöluðum og umdeildum félagaskiptum. Skiptum sem síðan áttu eftir að leiða til þess að reglum varðandi eignarhald þriðja aðila var breytt á Bretlandseyjum.

Í kvöld snúa þeir aftur á Upton Park, heimavöll West Ham, sem liðsfélagar í argentínska landsliðinu. Argentína mætir þá Króatíu í vináttulandsleik.

Þetta verður fyrsti leikur Tevez fyrir þjóð sína í þrjú ár en umdeilt var þegar hann var skilinn eftir utan hóps fyrir HM í Brasilíu. Þar spilaði þó inn í að Tevez náði sér engan veginn á strik með Argentínu í Suður-Ameríku keppninni síðustu.

Þessir tveir leikmenn lituðu báðir ensku úrvalsdeildina á skemmtilegan hátt og verður þeim vafalítið vel tekið í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner