Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 13. janúar 2017 17:18
Stefnir Stefánsson
Schlupp til Crystal Palace (Staðfest)
Kominn til Palace
Kominn til Palace
Mynd: Getty Images
Crystal Palace eru búnir að ganga frá kaupum á Jeffrey Schlupp. Félagið staðfesti kaupin á heimasíðu sinni nú fyrir skemmstu.

Kaupverðið er óuppgefið en það er talið vera í kringum 12 milljónir punda. Schlupp kemur frá Englandsmeisturum Leicester en hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Palace. Þrátt fyrir ágætis rispur í fyrra þá hefur hann einungis byrjað einn leik fyrir Leicester á þessu tímabili.

„Hann mun færa okkur styrk og reynslu inn í vörnina, þrátt fyrir að vera einungis 24 ára gamall. Það mun hjálpa okkur mikið." Sagði Sam Allardyce við undirskriftina.

Schlupp gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar þeir heimsækja West Ham á morgun en liðið er einu stigi frá fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner