Jack Collison, fyrrum leikmaður West ham hefur neyðst til að leggja skóna á hilluna aðeins 27 ára gamall.
Collison hefur undanfarin ár verið að kljást við erfið meiðsli á hné og nú hefur hann ákveðið að hætta allri knattspyrnuiðkun.
Collison hefur undanfarin ár verið að kljást við erfið meiðsli á hné og nú hefur hann ákveðið að hætta allri knattspyrnuiðkun.
Collison sem er miðjumaður þótti mikið efni á sínum tíma en hann er uppalinn hjá West Ham og lék yfir 100 deildarleiki fyrir liðið.
Collison spilað 17 landsleiki fyrir Wales á ferlinum.
Hann var síðast á mála hjá Peterborough eftir misheppnaða dvöl hjá Ipswich Town.
Athugasemdir