Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 13. desember 2017 19:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
HM félagsliða: Bale tryggði Real sigur
Mynd: Getty Images
Al Jazira 1 - 2 Real Madrid
1-0 Romarinho ('41)
1-1 Cristiano Ronaldo ('53)
1-2 Gareth Bale ('81)

Real Madrid á möguleika á því að vinna HM félagsliða annað árið í röð eftir nauman sigur á Al Jazira frá Abú Dabí í kvöld.

Real, sem er ríkjandi Spánar- og Evrópumeistari, lenti undir á 41. mínútu þegar Brasilíumaðurinn Romarinho skoraði. Cristiano Ronaldo jafnaði fyrir Madrídinga í upphafi seinni hálfleiks.

Jafnt var á tölum alveg fram á 81. mínútu þegar Walesverjinn Gareth Bale kom boltanum í netið með sinni fyrstu snertingu eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Bale hefur verið mikið í meiðslum og markið var kærkomið fyrir hann.

Á sunnudaginn mun Real Madrid spila úrslitaleikinn gegn Gremio frá Brasilíu. Mótið fer fram í Abú Dabí.
Athugasemdir
banner
banner