Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. febrúar 2017 11:30
Magnús Már Einarsson
Lukaku ekki með Everton til Dubai
Romelu Lukaku.
Romelu Lukaku.
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku, framherji Everton, fer ekki með liðsfélögum sínum í æfingaferð til Dubai í vikunni.

Lukaku er að glíma við meiðsli á kálfa og er á leið til heimalandsins Belgíu til að fara í nánari skoðun hjá læknum þar.

Everton vonast þó að meiðsli Lukau séu ekki alvarleg og hann verði með í næsta leik gegn Sunderland þann 25. febrúar.

Yannick Bolasie og Lukaku er einu leikmennirnir sem fara ekki með Everton til Dubai en aðrir leikmenn eru heilir heilsu.

Lukaku hefur farið á kostum með Everton á tímabilinu en hann er næstmarkahæstur í ensku úrvalsdeildinni með 16 mörk í 24 leikjum.
Athugasemdir
banner