Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. febrúar 2017 19:46
Þorsteinn Haukur Harðarson
Nær Messi að jafna Ronaldo í kvöld?
Messi hefur raðað inn mörkum í Meistaradeildinni í vetur
Messi hefur raðað inn mörkum í Meistaradeildinni í vetur
Mynd: Getty Images
Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi, sem leikur með Barcelona, verður í eldlínunni með sínum mönnum í kvöld þegar liðið heimsækir PSG frá Frakklandi.

Messi hefur skorað 93 mörk til þessa í Meistaradeildinni á ferlinum og er einungis tveimur mörkum á eftir Cristiano Ronaldo, leikmanni Real Madrid, á lista yfir markahæstu leikmenn í sögu keppninnar.

Messi var í banastuði í riðlakeppninni fyrir áramót og skoraði alls tíu mörk.

Haldi hann uppteknum hætti í kvöld er ekki ólíklegt að hann nái að jafna Ronaldo á listanum yfir markahæstu menn í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner