Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 14. apríl 2018 18:15
Gunnar Logi Gylfason
Salah sá þriðji til að skora 40 mörk á tímabili
Salah hefur verið óstöðvandi á tímabilinu
Salah hefur verið óstöðvandi á tímabilinu
Mynd: Getty Images
Egyptinn Mohamed Salah hefur farið gjörsamlega á kostum fyrir Liverpool á tímabilinu.

Þegar þessi frétt er skrifuð er Liverpool yfir gegn Bournemouth og örfáar mínútur eftir af leiknum.

Annað mark Liverpool í leiknum skoraði Mohamed Salah og varð hann um leið aðeins þriðji leikmaður Liverpool til að skora 40 mörk á tímabili, í öllum keppnum.

Hinir tveir eru Roger Hunt sem gerði það tímabilið 1961-1962 og Ian Rush sem gerði það tímabilin 1983-1984 og 1986-1987.




Athugasemdir
banner
banner