Karl Brynjar Björnsson hefur framlengt samning sinn við Þrótt R. um eitt ár.
Karl hefur skorað níu mörk í 114 leikjum með Þrótti síðan hann kom til félagsins frá ÍR árið 2012.
Hinn 32 ára gamli Karl spilaði sjö leiki í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar en Þróttur endaði þar í þriðja sæti.

„Við Þróttarar fögnum því að Karl Brynjar sem leikið hefur stórt hlutverk í liði okkar í gegnum tíðina hafi ákveðið að taka þátt í baráttunni næsta sumar og framlengt samning. Lifi Þróttur!" segir í yfirlýsingu frá Þrótti.
Athugasemdir