Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 15. febrúar 2017 12:42
Elvar Geir Magnússon
Gerrard: Eins og Messi hafi ekki nennt þessu
Messi átti svakalega slakan leik.
Messi átti svakalega slakan leik.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi hefur fengið harða gagnrýni eftir frammistöðuna með Barcelona í 4-0 tapinu gegn PSG í gær.

„Það er eins og hann hafi ekki nennt þessu. Eins og hann hafi ekki reynt," sagði Steven Gerrard sem fjallaði um leikinn á BT Sport.

Argentínumaðurinn var ansi ólíkur sjálfum sér í leiknum og glataði knettinum til að mynda í aðdraganda marksins sem Julian Draxler skoraði.

„Viðbrögð hans voru mjög slök. Allan leikinn virkaði hann kærulaus og áhugalaus. Hann virkaði þreyttur og hugmyndasnauður en hann er mannlegur," sagði Rio Ferdinand sem var í myndverinu með Gerrard.

Það er heldur betur á brattann að sækja fyrir Börsunga í seinni leiknum sem verður eftir þrjár vikur.
Athugasemdir
banner
banner