Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 15. mars 2018 14:37
Elvar Geir Magnússon
Southgate: Baráttan um markmannsstöðuna galopin
Hart var valinn.
Hart var valinn.
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate opinberaði enskan landsliðshóp í dag.

Joe Hart er í hópnum þrátt fyrir að hafa átt mjög erfiða mánuði, hann hefur talsvert þurft að verma varamannabekkinn hjá West Ham.

„Baráttan um markmannsstöðuna er klárlega galopin. Joe Hart hefur átt erfiða tíma með félagsliði sínu en hann er okkar reynslumesti markvörður og á fjöldamarga leiki að baki. Þess vegna vildum við hafa hann með okkur," segir Southgate um þá umdeildu ákvörðun að velja Hart.

Jack Butland hjá Stoke og Nick Pope hjá Burnley eru einnig í hópnum sem leikur gegn Hollandi og Ítalíu í vináttulandsleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner