Nú er alveg að fyllast í Gulldeildina sem spiluð verður á glænýju gervigrasi á Leiknisvellinum.
Þeir sem hafa áhuga geta skráð sitt lið á [email protected] fyrir 17. apríl!
Fyrstur kemur fyrstur fær.
Mótaplan fyrir sumarið kemur svo út 20. apríl og deildin er áætluð að byrja fimmtudaginn 3. maí eða mánudaginn 7. maí.
Þetta verður sautjánda sumarið sem Leiknir stendur fyrir sjö manna utandeild. Deildin hefur verið gríðarlega vinsæl undanfarin ár og keppendur á ári hverju um 500 í 30-40 liðum að sumri til og um 250 í 20 liðum í sérstakri vetrardeild.
Nánari upplýsingar: [email protected]
Athugasemdir