Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 16. júlí 2014 19:30
Daníel Freyr Jónsson
Oblak verður arftaki Courtois hjá Atletico Madrid (Staðfest)
Jan Oblak.
Jan Oblak.
Mynd: Getty Images
Slóvenski markmaðurinn Jan Oblak er formlega genginn í raðir Atletico Madrid frá Benfica og skrifaði hann undir sex ára samning hjá Spánarmeisturunum.

Atletico greiðir Benfica 16 milljónir evra fyrir þennan 21 árs gamla Slóvena, en hann þykir vera einn efnilegasti markvörður Evrópu.

Oblak bíður það verðuga verkefni hjá Atletico að fylla skarð Belgans Thibaut Courtois, sem snúinn er aftur til Chelsea eftir að hafa varið mark liðsins undanfarin þrjú ár sem lánsmaður.

Oblak stóð í marki Benfica í vetur þegar félagið varð bæði deild og bikar heima fyrir, auk þess sem liðið vann Evrópudeildina.
Athugasemdir
banner