banner
   mið 16. ágúst 2017 18:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi: Þetta er félag með mikinn metnað
Fyrsta viðtal Gylfa sem leikmaður Everton
Icelandair
Gylfi er mættur til Everton!
Gylfi er mættur til Everton!
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson er orðinn leikmaður Everton. Þetta eru fréttir sem búið er að bíða eftir lengi, en loksins er þetta klárt.

Gylfi skrifaði í kvöld undir fimm ára samning við Everton. Talið er að Everton borgi Swansea 45 milljónir punda fyrir landsliðsmanninn.

Hann er langdýrasti íslenski fótboltamaður sögunnar og er núna á topp 40 yfir dýrustu fótboltamenn allra tíma.

„Vonandi mun ég skapa og skora mörk fyrir liðið og leggja mitt af mörkum svo við getum náð þeim árangri sem við stefnum að," sagði Gylfi í sínu fyrsta viðtali sem leikmaður Everton. Hann ræddi við sjónvarpsstöð félagsins, Everton TV.

„Þetta er félag með mikinn metnað og það er ljóst að við erum á leið í rétta átt. Það mikilvægasta er að liðið vinni leiki og klifri upp töfluna - og geri það í gegnum allt tímabilið."

„Ég vil skora eins mörg mörk og ég get, og ég vil skapa eins mörg mörk fyrir liðsfélaga mína og ég get. Það er mitt markmið. En ég hugsa alltaf það sama: svo lengi sem liðið er að vinna þá er ég meira en ánægður," sagði Gylfi í viðtalinu.

Gylfi er spenntur fyrir því að vinna með Ronald Koeman.

„Hann var frábær leikmaður á sínum tíma. Núna er hann mjög góður stjóri og sýn hans með Everton er skýr. Hann hefur byggt upp góðan hóp hérna með góðum leikmönnum."




Sjá einnig:
Risa viðtal við Gylfa um félagaskiptin
Uppboð: Everton treyja árituð af Gylfa - Hæsta boð 200 þúsund
Myndband: Gylfi kynntur fyrir stuðningsmönnunum í kvöld
Gylfi: Skil við Swansea á góðum nótum
Gylfi: Gæti tekið 1-2 ár að spila í Meistaradeildinni
Gylfi: Væri synd að taka föstu leikatriðin frá mér
Gylfi var kynntur með víkingaklappi - Ætlar sjálfur ekki að stjórna því
Koeman hefur reynt að kaupa Gylfa í mörg ár
Gylfi um svakalegt leikjaprógram: Þetta er það sem maður vill gera
Gylfi: Frábært að íslensku félögin fá hluta af upphæðinni
Gylfi: Margir dagar sem maður bjóst við að eitthvað myndi koma upp á
Everton eina liðið sem Gylfi hafði áhuga á - Reyndu við hann í fyrra
Gylfi: Hlakka mjög mikið til að spila með Rooney
Gylfi reiknar með að spila á miðjunni hjá Everton
Gylfi: 14 árum seinna fékk ég loksins samning hérna
Gylfi kominn með treyjunúmer - Tekur númerið af Barry
Stuðningsmenn Swansea í sárum - Farnir að bóka fall
Gylfi þá og nú í Everton búningi
Koeman: Gerðum allt til að fá Gylfa
Gylfi: Þetta er félag með mikinn metnað
Gylfi orðinn leikmaður Everton (Staðfest)
Tottenham græðir vel á sölu Gylfa til Everton
Gylfi tekur föstu leikatriðin af Rooney og Baines
Fréttamaður Sky: Koeman brosti út að eyrum þegar hann talaði um Gylfa
Telur að Everton muni byggja liðið í kringum Gylfa
„Vinnum deildina og Meistaradeildina eftir kaupin á Gylfa"
Gylfi spilar mögulega gegn Manchester City
Koeman um Gylfa: Þurfum mörk í stað Lukaku
Gylfi stóðst læknisskoðun - Skrifar undir í dag
Sjö staðreyndir sem sýna að Gylfi er hverrar krónu virði
Ekki há upphæð ef Gylfi kemur Everton í Meistaradeildina
Svona skiptast milljónir Gylfa - Breiðablik og FH fá 90 milljónir
Ian Wright: Hörmulegt fyrir Swansea að missa Gylfa
Dýrustu fótboltamenn sögunnar - Gylfi verður á topp 40
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner