mið 16. ágúst 2017 09:41
Hafliði Breiðfjörð
Svona skiptast milljónir Gylfa - Breiðablik og FH fá 90 milljónir
Icelandair
Gylfi Þór Sigurðsson verður leikmaður Everton síðar í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson verður leikmaður Everton síðar í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson gengur í dag í raðir Everton að undangenginni læknisskoðun en félagið náði loks samkomulagi við Swansea í gær um 45 milljóna punda kaupverð á leikmanninum.

45 milljónir punda eru 6,4 milljarðar íslenskra króna en upphæðin rennur ekki öll til Swansea. Hluti af upphæðinni skal greiðast til félaganna sem Gylfi ólst upp hjá, svokallaðar samstöðubætur, sem eru greiddar ef leikmaður fer milli landa.

Þó svo Gylfi haldi áfram í ensku úrvalsdeildinni þá skiptir hann milli knattspyrnusambanda því Swansea er frá Wales en Everton Englandi.

Gylfi ólst upp hjá FH fyrstu árin en hélt til Breiðabliks í þrjú ár áður en hann var seldur til Reading á Englandi og síðar til Hoffenheim í Þýskalandi. Upphæðin skiptist svo hlutfallslega milli þessara félaga en hluturinn er mismunandi eftir aldri hans hjá viðkomandi félögum.

Þannig eru greidd 0,25% fyrir hvert ár 12-15 ára og 0,5% á ári 16-23 ára eða samtals 5%. Gylfi fór 14 ára gamall frá FH til Breiðabliks þar sem hann var í þrjú ár og þetta útskýrir afhverju FH fær helmingi minna en Breiðablik.

Samstöðubæturnar eru í heildina 5% og skiptast ekki bara milli FH og Breiðabliks því Reading og Hoffenheim fá líka sitt eins og sjá má hér að neðan.

Söluverð: 6,4 milljarðar kr.
FH 0,5%: 32 milljónir kr.
Breiðablik 1%: 64 milljónir kr.
Reading: 2,5%: 159 milljónir kr.
Hoffenheim: 1%: 64 milljónir kr.
-----------------------------------------------
Samtals samstöðubætur 5%: 317 milljónir

Sjá einnig:
Risa viðtal við Gylfa um félagaskiptin
Uppboð: Everton treyja árituð af Gylfa - Hæsta boð 200 þúsund
Myndband: Gylfi kynntur fyrir stuðningsmönnunum í kvöld
Gylfi: Skil við Swansea á góðum nótum
Gylfi: Gæti tekið 1-2 ár að spila í Meistaradeildinni
Gylfi: Væri synd að taka föstu leikatriðin frá mér
Gylfi var kynntur með víkingaklappi - Ætlar sjálfur ekki að stjórna því
Koeman hefur reynt að kaupa Gylfa í mörg ár
Gylfi um svakalegt leikjaprógram: Þetta er það sem maður vill gera
Gylfi: Frábært að íslensku félögin fá hluta af upphæðinni
Gylfi: Margir dagar sem maður bjóst við að eitthvað myndi koma upp á
Everton eina liðið sem Gylfi hafði áhuga á - Reyndu við hann í fyrra
Gylfi: Hlakka mjög mikið til að spila með Rooney
Gylfi reiknar með að spila á miðjunni hjá Everton
Gylfi: 14 árum seinna fékk ég loksins samning hérna
Gylfi kominn með treyjunúmer - Tekur númerið af Barry
Stuðningsmenn Swansea í sárum - Farnir að bóka fall
Gylfi þá og nú í Everton búningi
Koeman: Gerðum allt til að fá Gylfa
Gylfi: Þetta er félag með mikinn metnað
Gylfi orðinn leikmaður Everton (Staðfest)
Tottenham græðir vel á sölu Gylfa til Everton
Gylfi tekur föstu leikatriðin af Rooney og Baines
Fréttamaður Sky: Koeman brosti út að eyrum þegar hann talaði um Gylfa
Telur að Everton muni byggja liðið í kringum Gylfa
„Vinnum deildina og Meistaradeildina eftir kaupin á Gylfa"
Gylfi spilar mögulega gegn Manchester City
Koeman um Gylfa: Þurfum mörk í stað Lukaku
Gylfi stóðst læknisskoðun - Skrifar undir í dag
Sjö staðreyndir sem sýna að Gylfi er hverrar krónu virði
Ekki há upphæð ef Gylfi kemur Everton í Meistaradeildina
Svona skiptast milljónir Gylfa - Breiðablik og FH fá 90 milljónir
Ian Wright: Hörmulegt fyrir Swansea að missa Gylfa
Dýrustu fótboltamenn sögunnar - Gylfi verður á topp 40
Athugasemdir
banner
banner
banner