Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 16. ágúst 2017 15:18
Magnús Már Einarsson
Skrifar frá Liverpool
Telur að Everton muni byggja liðið í kringum Gylfa
Koeman ætlar að bæta við framherja
Icelandair
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Ronald Koeman, stjóri Everton, sagði á fréttamannafundi í dag að hann vilji bæta framherja við leikmannahópinn áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin.

Romelu Lukaku var langmarkahæstur hjá Everton á síðasta tímabili en hann er farinn til Manchester United. Gylfi Þór Sigurðsson er að ganga í raðir Everton á metfé auk þess sem Wayne Rooney er kominn aftur til félagsins. Þeir eiga að hjálpa Everton í sóknarleiknum eftir að Lukaku hvarf á braut.

„Með Lukaku misstum við 25 mörk og við þurftum fleiri leikmenn en einn til að ná þessum markafjölda," sagði Koeman á fréttamannafundi í dag.

Koeman stefnir á að spila 3-4-1-2 með Gylfa í stöðunni fyrir aftan framherjana tvo.

Rooney verður væntanlega annar framherjanna í byrjunarliðinu en Koeman vill einnig bæta öðrum leikmanni við í sóknarlínuna. Um helgina byrjaði Sandro Ramirez frammi í 1-0 sigrinum á Stoke en hann kom til Everton frá Malaga í sumar.

Mike Keegan, íþróttafréttamaður á Daily Mail, sagði í samtali við Fótbolta.net í dag að Everton muni byggja liðið í krignum Gylfa.

„Hann er dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins og því fylgir mikil pressa. Hann er mjög góður leikmaður. Everton er með reynsluna í Rooney en liðið hefur líka marga unga leikmenn og Sigurðsson sem er á hátindi ferilsins. Ég tel að Everton geti byggt liðið í kringum hann og hann verður aðalmaðurinn núna eftir að Lukaku er farinn. Það er mikil ábyrgð á honum en eins og stjórinn sagði þá er stefnan sett á að finna annan framherja," sagði Keegan við Fótbolta.net.

Fóbolti.net er á Englandi og færir ykkur fréttir af málum Gylfa um leið og þær gerast

Sjá einnig:
Risa viðtal við Gylfa um félagaskiptin
Uppboð: Everton treyja árituð af Gylfa - Hæsta boð 200 þúsund
Myndband: Gylfi kynntur fyrir stuðningsmönnunum í kvöld
Gylfi: Skil við Swansea á góðum nótum
Gylfi: Gæti tekið 1-2 ár að spila í Meistaradeildinni
Gylfi: Væri synd að taka föstu leikatriðin frá mér
Gylfi var kynntur með víkingaklappi - Ætlar sjálfur ekki að stjórna því
Koeman hefur reynt að kaupa Gylfa í mörg ár
Gylfi um svakalegt leikjaprógram: Þetta er það sem maður vill gera
Gylfi: Frábært að íslensku félögin fá hluta af upphæðinni
Gylfi: Margir dagar sem maður bjóst við að eitthvað myndi koma upp á
Everton eina liðið sem Gylfi hafði áhuga á - Reyndu við hann í fyrra
Gylfi: Hlakka mjög mikið til að spila með Rooney
Gylfi reiknar með að spila á miðjunni hjá Everton
Gylfi: 14 árum seinna fékk ég loksins samning hérna
Gylfi kominn með treyjunúmer - Tekur númerið af Barry
Stuðningsmenn Swansea í sárum - Farnir að bóka fall
Gylfi þá og nú í Everton búningi
Koeman: Gerðum allt til að fá Gylfa
Gylfi: Þetta er félag með mikinn metnað
Gylfi orðinn leikmaður Everton (Staðfest)
Tottenham græðir vel á sölu Gylfa til Everton
Gylfi tekur föstu leikatriðin af Rooney og Baines
Fréttamaður Sky: Koeman brosti út að eyrum þegar hann talaði um Gylfa
Telur að Everton muni byggja liðið í kringum Gylfa
„Vinnum deildina og Meistaradeildina eftir kaupin á Gylfa"
Gylfi spilar mögulega gegn Manchester City
Koeman um Gylfa: Þurfum mörk í stað Lukaku
Gylfi stóðst læknisskoðun - Skrifar undir í dag
Sjö staðreyndir sem sýna að Gylfi er hverrar krónu virði
Ekki há upphæð ef Gylfi kemur Everton í Meistaradeildina
Svona skiptast milljónir Gylfa - Breiðablik og FH fá 90 milljónir
Ian Wright: Hörmulegt fyrir Swansea að missa Gylfa
Dýrustu fótboltamenn sögunnar - Gylfi verður á topp 40
Athugasemdir
banner
banner