Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. október 2014 22:52
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Fékk rautt fyrir að snerta rass andstæðingsins
Markvörður Sociedad fékk eitt stykki rautt spjald fyrir svo gott sem ekkert.
Markvörður Sociedad fékk eitt stykki rautt spjald fyrir svo gott sem ekkert.
Mynd: Getty Images
Undarlegt atvik átti sér stað í Hondúras á dögunum en markvörður fékk þá að líta rauða spjaldið fyrir það eitt að snerta afturenda á andstæðingnum.

Real Sociedad og Marathon í Hondúras áttust við en markvörður Sociedad tók þá boltann upp með höndum inn í teig.

Leikmaður Marathon hljóp að honum og reyndi að ná boltanum en tókst ekki. Markvörður Sociedad gaf honum því létt klapp á rassinn en það féll ekki vel í kramið hjá dómurum leiksins og fékk markvörðurinn rautt spjald fyrir.

Hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner