Skagamaðurinn Andri Geir Alexandersson skoraði sigurmark af dýrari gerðinni í bandaríska háskólaboltanum. Andri leikur með George Washington háskóla sem lagði af velli hið öfluga lið Naval Academy.
Markið kom beint úr aukaspyrnu og má sjá í spilaranum hér að ofan.
Andri Geir er uppalinn á Skaganum en spilaði fantavel með HK í 1. deildinni í sumar þar til í byrjun ágústmánaðar er hann hélt til náms að nýju.
Athugasemdir