Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 18. desember 2014 15:29
Magnús Már Einarsson
Ísland spilar við Kanada í janúar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnusambönd Íslands og Kanada hafa komist að samkomulagi um að karlalandslið þjóðanna leiki 2 vináttulandsleiki, 16. og 19. janúar.

Leikirnir fara fram í Florida í Bandaríkjunum en þetta verða annar og þriðji leikurinn á milli karlalandsliða þessara þjóða.

Ekki er um að ræða alþjóðlegan leikdag og því er líklegt að flestir leikmenn í íslenska hópnum komi úr félögum á Norðurlöndunum.

Leikið verður á velli University of Central Florida, "UCF Soccer and Track Complex", sem staðsettur er í Oviedi í Florida.

Eini leikurinn hingað til fór fram árið 2007 þegar leikinn var vináttulandsleikur á Laugardalsvelli sem lauk með 1 – 1 jafntefli. Kanada er sem stendur í 110. sæti á styrkleikalista FIFA en liðið gerði markalaust jafntefli gegn Panama í síðasta leik sínum, í vináttulandsleik sem fram fór 18. nóvember síðastliðinn.

Þjálfari kanadíska landsliðsins er Spánverjinn Benito Floro sem hefur þjálfað mörg félagslið á Spáni og var m.a. þjálfari Real Madrid á árunum 1992 – 1994.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner