Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 19. janúar 2015 09:30
Magnús Már Einarsson
Kristinn Steindórs: Hlakka til að mæta Kaka og Gerrard
Kristinn Steindórsson.
Kristinn Steindórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Steindórsson segist bíða spenntur eftir að fá að spreyta sig í MLS-deildinni með Columbus Crew en hann samdi við félagið á dögunum.

Steven Gerrard mun í sumar ganga í raðir LA Galaxy og brasilíski snillingurinn Kaka leikur með Orlando City.

,,Það eru leikmenn sem ég bíð spenntur eftir að spila með hjá Columbus," sagði Kristinn í viðtali á heimasíðu MLS deildarinnar.

,,Ég hlakka líka til að spila á móti leikmönnum eins og Kaka og Gerrard."

Columbus Crew spilar 4-2-3-1 en ekki er ljóst í hvaða stöðu Kristinn mun spila. ,,Það sem ég veit er að þeir sjá mig í einni af stöðunum fyrir aftan framherjann. Vinstra megin, hægra megin eða jafnvel á miðjunni."

Kristinn skoraði í sigri Íslands á Kanada á föstudagskvöld en hann verður aftur í eldlínunni þegar liðin mætast í beinni á SkjáSport klukkan 21:00 í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner