Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. janúar 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rún og Sigurrós skrifa undir hjá Haukum
Mynd: Haukar
Rún Friðriksdóttir og Sigurrós Eir Guðmundsdóttir eru búnar að skrifa undir samninga við Hauka. Rún er fædd 1991 og Sigurrós 1993.

Rún er uppalin hjá Haukum og á 77 leiki að baki með meistaraflokki. Síðasta sumar lék hún 10 leiki á láni hjá Þrótti R. og lék svo fyrir FC Aarau Frauen í svissnesku úrvalsdeildinni um haustið.

„Það er afar ánægjulegt að Rún sé komin aftur í Hauka því hún er öflug innan sem utan vallar. Rún er vinnusamur miðjumaður með gott auga fyrir spili og á eftir að styrkja okkur mikið á öllum sviðum. Leiðtogahæfni og reynsla hennar mun klárlega nýtast okkar unga liði,“ segir Jakob Leó Bjarnason, þjálfari meistaraflokks kvenna.

Sigurrós Eir hefur verið hjá Þrótti undanfarin ár eftir að hafa byrjað ferilinn með Keflavík.

„Sigurrós Eir er kröftugur miðjumaður sem á eftir að koma með reynslu og aukin gæði inn í okkar lið. Hún smellpassar inn í okkar hugmyndafræði og það verður gaman að sjá hana vaxa og dafna á Ásvöllum. Þar að auki er Sigurrós fjölhæfur leikmaður og mun hiklaust gera aðra leikmenn í kringum sig betri."
Athugasemdir
banner
banner
banner