Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 19. febrúar 2018 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Boateng með sigurmarkið gegn Leipzig
Mynd: Getty Images
Frankfurt 2 - 1 Leipzig
0-1 Jean Augustin ('13)
1-1 Timothy Chandler ('22)
2-1 Kevin-Prince Boateng ('26)

Eintracht Frankfurt og RB Leipzig mættust í meistaradeildarslag í þýska boltanum í kvöld.

Gestirnir komust yfir snemma leiks þegar Jean Augustin kláraði frábæra sókn með marki.

Níu mínútum síðar var Timothy Chandler búinn að jafna eftir atgang í vítateig gestanna í kjölfar hornspyrnu.

Kevin-Prince Boateng kom heimamönnum yfir skömmu síðar eftir vel útfærða skyndisókn.

Leikurinn róaðist talsvert í kjölfar þriðja marksins og fengu bæði lið færi til að bæta við mörkum en tókst ekki.

Frankfurt er í þriðja sæti eftir sigurinn, tveimur stigum fyrir ofan Leipzig sem er í fimmta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner