Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 19. mars 2018 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Eric Dier: Wembley verður ekki heimavöllur gegn United
Mynd: Getty Images
Eric Dier hefur verið að gera góða hluti hjá Tottenham og var í byrjunarliðinu í 3-0 sigri gegn Swansea í 8-liða úrslitum FA bikarsins um helgina.

Tottenham mætir Manchester United í undanúrslitum og verður leikurinn spilaður á Wembley, sem hefur verið heimavöllur Tottenham á tímabilinu.

Því hafa margar spurningar vaknað um hvort það sé sanngjarnt að Tottenham fái heimaleik í undanúrslitum, en Dier telur þetta ekki vera heimaleik.

„FA bikarinn er allt önnur keppni, hérna ræðst allt í einum leik. Leikvanginum er skipt í tvennt, þannig við verðum ekki með fleiri stuðningsmenn en þeir," sagði Dier.

„Fólk heldur að við græðum á því að hafa spilað þarna allt tímabilið en það áttar sig ekki á því að þetta eru undanúrslit í bikarnum, það er enginn á heimavelli."
Athugasemdir
banner
banner
banner