Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 19. nóvember 2015 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: DM 
Usain Bolt: Man Utd myndi bjóða mér fimm ára samning
Bolt elskar fótbolta og er mikill stuðningsmaður Man Utd.
Bolt elskar fótbolta og er mikill stuðningsmaður Man Utd.
Mynd: Getty Images
Usain Bolt er líklega hraðasti maður sem uppi hefur verið og hefur sankað að sér gullverðlaunum í spretthlaupi.

Bolt er mikill stuðningsmaður Manchester United og þekktur fyrir að vera mikill húmoristi en árið 2009 reyndi hann að sannfæra Sir Alex Ferguson um að bjóða sér atvinnumannasamning hjá Rauðu djöflunum.

Bolt er 29 ára gamall og segist handviss um það að honum yrði boðinn fimm ára samningur ef hann fengi að koma á reynslu.

„Mér finnst eins og ég ætti að fá að koma á reynslu, þá geta þeir annað hvort hleypt mér inn í liðið eða sagt að ég sé ekki nógu góður og sleppt því.

„Ég er í formi, ég er snöggur, ég hef góða stjórn á boltanum og hef mikinn leikskilning.

„Ef ég fengi að koma á reynslu núna þá held ég að þeir myndu segja: „Veistu hvað, hérna er fimm ára samningur fyrir þig! Þú ert 30 ára gamall, hérna er fimm ára samningur. Gerum þetta bara!""

Athugasemdir
banner
banner