Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. nóvember 2017 17:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Búlgaría: Náðu ekki að skora gegn versta liði deildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vitosha Bistritsa 0 - 0 Levski Sofia

Varnarmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson og liðsfélagar hans í Levski Sofia í Búlgaríu mættu versta liði úrvalsdeildarinnar þar í landi, Vitosha Bistritsa, í dag. Búist var við mjög auðveldum sigri Levski fyrir leikinn, en annað kom á daginn.

Hólmar Örn Eyjólfsson er á láni hjá Levski frá Maccabi Haifa og lék allan leikinn í hjarta varnarinnar.

Levski-liðið reyndi hvað það gat til að skora, en það tókst því miður ekki og markalaust jafntefli staðreynd.

Levski er í þriðja sæti með 29 stig, 10 stigum frá toppnum. Vitosha Bistritsa er á botninum með aðeins þrjú stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner