Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 20. júlí 2017 20:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Evrópudeildin: Everton fer til Slóvakíu
Rooney gæti spilað sinn fyrsta alvöru leik fyrir Everton á fimmtudag
Rooney gæti spilað sinn fyrsta alvöru leik fyrir Everton á fimmtudag
Mynd: Getty Images
Stór lið koma inn í næstu umferð af forkeppni Evrópudeildarinnar og þeirra á meðal er enska úrvalsdeildarfélagið Everton. Everton mun fara til Slóvakíu og mæta MFK Ruzomberok.

Slóvakarnir tryggðu sér einvígið gegn Everton með því að leggja norska félagið Brann í tveimur leikjum.

Ruzomberok vann einvígið samtals 2-1 og spilar á Goodison Park næsta fimmtudag.

Tímabilið í Englandi er ekki byrjað og er Everton á miðju undirbúningstímabili sínu. Þeir hafa spilað tvo æfingaleiki og unnið þá báða gegn FC Twente og Gor Mahia.

Tímabilið byrjar hins vegar fyrir alvöru fyrir Everton næsta fimmtudag þegar Slóvakarnir koma í heimsókn.
Athugasemdir
banner
banner
banner