Sigurður Egill Lárusson skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Val í dag.
Fyrri samningur Sigurðar rann út í síðustu viku en hann var orðaður við uppeldisfélag sitt Víking og fleiri félög. Hann segist það hafa komið til greina að fara í Víking.
Fyrri samningur Sigurðar rann út í síðustu viku en hann var orðaður við uppeldisfélag sitt Víking og fleiri félög. Hann segist það hafa komið til greina að fara í Víking.
,,Þeir voru inni í myndinni en mér líður vel í Val og ákvað að framlengja," sagði Sigurður Egill við Fótbolta.net í dag.
Sigurður Egill var að ljúka sínu öðru timabili með Val en í fyrra fór hann aftur í Víking á láni um tíma.
Þessi 22 ára gamli miðjumaður hefur verið í U21 árs landsliðinu en hann var í hópnum gegn Dönum á dögunum.
Allt bendir til þess að Sigurður Egill muni fara til enska félagsins Reading á reynslu í næstu viku en hann er með klásúlu í nýja samningnum sem leyfir honum að semja við erlent félag. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Athugasemdir