Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 21. febrúar 2017 17:42
Stefnir Stefánsson
Marko Valdimar til Hönefoss (Staðfest)
Marko Valdimar er genginn til liðs við Hönefoss í Noregi
Marko Valdimar er genginn til liðs við Hönefoss í Noregi
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Marko Valdimar Jankovic er genginn til liðs við Höneföss en liðið leikur í næst efstu deild í Noregi.

Hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag og skrifaði í kjölfarið undir.

Marko Valdimar gengur til liðsins frá Grindavík en hann lék 12 leiki fyrir félagið í Inkasso deildinni síðasta sumar.

Marko Valdimar sem er 26 ára gamall á 120 leiki að baki hérlendis og hefur hann skorað í þeim fjögur mörk.

Hann er uppalinn Grindvíkingur en hóf meistaraflokksferil sinn á láni hjá Njarðvík árið 2008.

Hjá Hönefoss hittir hann liðsfélaga sinn á síðasta tímabili Ásgeir Þór Ingólfsson en hann gekk einnig til liðs við Hönefoss í síðustu viku.

Þeir fóru báðir út til Noregs fyrr í vetur þar sem þeir skoðuðu aðstæður hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner