Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 21. mars 2015 15:15
Arnar Geir Halldórsson
Beckham: Bale er einn af bestu leikmönnum heims
Beckham í búningi Real Madrid
Beckham í búningi Real Madrid
Mynd: Getty Images
David Beckham segir Gareth Bale vera einn af bestu knattspyrnumönnum heims en Bale verður í eldlínunni annað kvöld þegar Real Madrid sækir Barcelona heim.

Bale hefur verið harðlega gagnrýndur af stuðningsmönnum Madrídarliðsins fyrir frammistöðu sína í vetur en hann var keyptur fyrir tæplega 80 milljónir punda fyrir tveim árum.

,,Gareth átti fullkomið tímabil í fyrra, á sínu fyrsta ári. Hann skoraði mörg mikilvæg mörk. Hann er einn dýrasti leikmaður sögunnar svo það var vitað að væntingarnar yrðu miklar", sagði Beckham.

Beckham er síðasti Bretinn til að spila með Real Madrid á undan Bale og þekkir vel hvernig lífið á Bernabeu gengur fyrir sig

,,Gareth er einn af bestu leikmönnum heims og spilar með liði sem er fullt af frábærum leikmönnum. Að spila með Cristiano Ronaldo, Sergio Ramos, Iker Casillas og fleirum góðum gerir þig að enn betri leikmanni".

,,Síðasta tímabil var frábært hjá honum og hann er búinn að vera góður á þessu tímabili. Það koma alltaf augnablik þar sem menn spila ekki vel og það er eðlilegt".

,,Hann hefur skorað nokkur frábær mörk á þessu tímabili og hann er frábær karakter. Í mínum huga er hann einn af þeim bestu",
sagði goðsögnin að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner