Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 21. júlí 2014 19:03
Brynjar Ingi Erluson
Elmar lék allan leikinn í sigri Randers - Ögmundur á bekknum
Theodór Elmar í leik með íslenska landsliðinu
Theodór Elmar í leik með íslenska landsliðinu
Mynd:
Theodór Elmar Bjarnason, leikmaður Randers í Danmörku, lék allan leikinn er liðið sigraði Esbjerg með einu marki geng engu í dönsku deildinni í dag.

Elmar er lykilmaður í liði Randers en hann hefur leikið 53 leiki og skorað eitt mark fyrir liðið frá því hann kom frá IFK Gautaborg fyrir tveimur árum.

Hann lék allan leikinn í sigri Randers á Esbjerg í dag en þetta var fyrsti leikur liðsins í dönsku deildinni. Elmar lagði upp eina mark leiksins.

Ögmundur Kristinsson, sem kom til Randers frá Fram á dögunum, var þó allan tímann á tréverkinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner