KSÍ og Errea stefna á að afhjúpa nýjan landsliðsbúning í mars. Búningurinn verður notaður á HM í Rússlandi í sumar.
„Það er allt á fullu og þetta verður vonandi í mars," sagði Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, við Fótbolta.net í dag.
„Það verður formleg afhjúpun og það verður gert með pompi og prakt."
Miklar umræður voru í kringum búninginn sem Ísland spilaði á EM í Frakklandi. Klara segir að nýi búningurinn sé öðruvísi í útliti og hún reiknar með að hann eigi eftir að skapa umtal.

„Hann er öðruvísi og hann verður umdeildur, ég get lofað því. Ég verð illa svikinn ef hann verður ekki umdeildur, þá er fólk búið að missa áhugann á okkur," sagði Klara létt í bragði.
Athugasemdir