Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. febrúar 2017 20:51
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Brotist inn í íbúð Hallberu og öllu rústað
Hallbera í leik með landsliðinu
Hallbera í leik með landsliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Hallbera Gísladóttir lenti í heldur óskemmtilegri lífreynslu í dag eftir að brotist var inn til hennar og íbúðin lögð í rúst, en hún sagði frá þessu á Twitter síðu sinni.

Hallbera er ný flutt til Stokkhólms, höfuðborgar Svíþjóðar en hún gekk til liðs við Djurgarden frá Breiðablik.

Íbúð hennar er á annarri hæð og þurftu því ræningjarnir að klifra upp á svalir íbúðarinnar.

Íbúðinni var rústað á meðan Hallbera var á æfingu hjá sínu nýja félagi.

Blessunarlega var Hallbera ekki heima þegar ræningjarnir tóku til sín, en samt sem áður lífsreynsla sem enginn vill lenda í.

Tweet Hallberu má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner