Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 22. mars 2018 07:30
Hrafnkell Már Gunnarsson
Verður Clement næsti stjóri Jóns Daða?
Clement að taka við Reading?
Clement að taka við Reading?
Mynd: Getty Images
Paul Clement, fyrrum stjóri Swansea, er líklegur að taka við Reading á næstu dögum. Sagt er að Clement sé í viðræðum við félagið eftir að Jaap Stam var rekinn í gær.

Celment hefur ekki verið með starf síðan hann var rekinn frá Swansea fyrr á tímabilinu. Swansea var þá í síðasta sæti ensku úrvaldeildinnar, fjórum stigum frá öruggu sæti.

Reading hefur einungis unnið einn af síðustu 19 leikjum í Championship deildinni og er nú í 20. sæti, þremur stigum frá falli.

Jón Daði Böðvarsson spilar með Reading en hann er markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu með tíu mörk.

Celment hefur unnið áður með íslenskum landsliðsmanni þegar Gylfi Sigurðsson hjálpaði honum og Swansea að halda sér í ensku úrvalsdeildinni í fyrra.

Spennandi verður að sjá hvort Clement muni hjálpa Reading að halda sér uppi í Championship ef hann tekur við.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leicester 44 30 4 10 86 39 +47 94
2 Leeds 44 27 9 8 80 37 +43 90
3 Ipswich Town 43 26 11 6 85 53 +32 89
4 Southampton 44 25 9 10 85 61 +24 84
5 West Brom 44 20 12 12 67 44 +23 72
6 Norwich 44 21 9 14 77 61 +16 72
7 Hull City 44 19 12 13 65 56 +9 69
8 Coventry 43 17 12 14 68 55 +13 63
9 Middlesbrough 44 18 9 17 64 60 +4 63
10 Preston NE 44 18 9 17 56 61 -5 63
11 Cardiff City 44 19 5 20 50 61 -11 62
12 Bristol City 44 16 11 17 51 47 +4 59
13 Sunderland 44 16 8 20 52 51 +1 56
14 Swansea 44 15 11 18 57 62 -5 56
15 Watford 44 12 17 15 59 58 +1 53
16 Millwall 44 14 11 19 43 55 -12 53
17 Stoke City 44 13 11 20 44 60 -16 50
18 QPR 44 13 11 20 41 57 -16 50
19 Blackburn 44 13 10 21 58 74 -16 49
20 Plymouth 44 12 12 20 58 69 -11 48
21 Sheff Wed 44 13 8 23 39 68 -29 47
22 Birmingham 44 12 10 22 48 64 -16 46
23 Huddersfield 44 9 17 18 47 74 -27 44
24 Rotherham 44 4 12 28 32 85 -53 24
Athugasemdir
banner
banner