Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 22. apríl 2017 18:36
Magnús Már Einarsson
Hazard um að vera á bekknum: Frábært val hjá Conte
Mynd: Getty Images
Eden Hazard byrjaði óvænt á bekknum gegn Tottenham í undanúrslitum enska bikarsins í dag.

Hazard kom inn á sem varamaður í síðari hálfleiknum og skoraði í 4-2 sigri Chelsea. Willian tók stöðu Hazard í byrjunarliðinu en hann skoraði tvívegis.

„Þegar þú spilar fótbolta þá viltu spila hvern einasta leik en stjórinn valdi frábærlega. Hann setti Willian í liðið og hann skoraði tvö mörk," sagði Hazard.

„Það er alltaf gott að vinna svona leiki, undanúrslit gegn liði frá London. Þetta er gott fyrir stuðningsmennina."

„Þetta verður fyrsti úrslitaleikur minn í fimm ár hjá Chelsea og það er gott."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner