Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. maí 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
Þakkar stuðninginn með því að gefa bjór
Srivaddhanaprabha gefur bjór.
Srivaddhanaprabha gefur bjór.
Mynd: Getty Images
Aiyawayy Srivaddhanaprabha, eigandi Leicester, er ánægður með stuðninginn sem liðið hefur fengið að undanförnu.

Í tilefni þess ætlar hann að splæsa bjór á stuðningsmenn fyrir leikinn gegn QPR í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag.

Srivaddhanaprabha ætlar að gefa öllum stuðningsmönnum einn bjór fyrir leik.

„Ég vil þakka stuðningsmönnunum fyrir ótrúlegan stuðning. Þeir hafa verið lykillinn í því að hjálpa liðinu að tryggja annað tímabil í úrvalsdeildinni," sagði Srivaddhanaprabha.

Leicester hefur bjargað sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni eftir ótrúlegt gengi undanfarnar vikur.
Athugasemdir
banner
banner
banner