Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 22. maí 2018 12:30
Ingólfur Stefánsson
Tottenham og Everton berjast um miðjumann Lille
Mynd: Getty Images
Tottenham og Everton hafa áhuga á Yves Bissouma miðjumanni Lille í Frakklandi.

Bissouma er 21 árs og kemur frá Malí. Hann er einnig á lista hjá Schalke sem vilja fá hann í staðinn fyrir Leon Goretzka sem er á leið til Bayern Munchen.

Tottenham hafa fylgst með stöðu Bissouma í gegnum tímabilið og líta á hann sem góðan kost sem arftaka Mousa Dembele sem gæti verið á förum frá félaginu.

Tottenham hefur einnig áhuga á Abdoulaye Doucoure hjá Watford, Amadou Heidara hjá RB Salzburg og Geoffrey Kondogbia sem lék með Valencia á síðustu leiktíð á láni frá Inter.

Það verður þó ekki gengið frá neinum kaupum fyrr en framtíð Mauricio Pochettino stjóra liðsins er komin á hreint en samræður Pochettino og Daniel Levy, stjórnarformanns Tottenham, eru sagðar ganga vel.
Athugasemdir
banner
banner
banner