Um helgina fer fram fimmta umferðin í Fantasy deild American bar og Fótbolta.net. Heil umferð er leikin í deildinni þar sem toppliðin frá Manchester spila bæði á morgun. Man City mætir Crystal Palace og Man Utd mætir Southampton.
Mörg þúsund lið hafa tekið þátt í Fantasy leikjunum hér á Fótbolta.net undanfarin ár og nú förum við á fullt í samstarfi við American Bar.
Í hverjum mánuði verða veitt verðlaun fyrir besta liðið hverju sinni og sigurvegarinn fær veglega úttekt á American Bar en þar er hægt að sjá leiki ensku úrvalsdeildarinnar í allan vetur.
Við byrjuðum að telja frá 2. umferð en þú átt góða möguleika ef þú skráir þig strax
Smelltu hér til að skrá þig í American Bar Fantasy deildina.
Kóðinn til að skrá sig er: 1694347-644884
Athugasemdir