Hinn 10 ára gamli Jaden Neale hefur skapað sér nafn sem boltastrákur hjá Bristol City.
Hann fangaði hjörtu fótboltaunnenda þegar Bristol City lagði Manchester United að velli í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins. Eftir sigurmark Bristol í þeim leik hljóp hann upp að Lee Johnson, stjóra Bristol og fagnaði vel og innilega með honum.

Neale var í kjölfarið boðið til Manchester þar sem hann fylgdist með leik Bristol City og Manchester City í undanúrslitum deildabikarsins.
Hann var svo boltastrákur í kvöld þegar Bristol tapaði 3-2 gegn Manchester City. Hann sást í útsendingu Sky Sports frá leiknum og kom upp skilti með nafni hans á.
Þessi ungi drengur er væntanlega sáttur með sína menn í Bristol City þrátt fyrir tap í kvöld en mynd af honum á leiknum er hér að neðan.
Mjög ánægður með þennan díteil hjá Sky Sports. pic.twitter.com/5ishW19GWD
— Þórður (@doddeh) January 23, 2018
NEWS: Kick off for #BristolCity's League Cup semi-final second leg is now less than two hours away! So here's a good luck message to the players from ballboy Jaden Neale #CmonCity pic.twitter.com/MKl8l0gIcT
— Sam FM News (@samfmnews) January 23, 2018
Athugasemdir