Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mið 23. mars 2016 08:00
Hafliði Breiðfjörð
skrifar frá Danmörku
Jón Daði: Finn að ég er mikilvægur liðinu
Borgun
watermark
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Daði Böðvarsson, sóknarmaður íslenska landsliðsins, er spenntur fyrir komandi vináttulandsleik gegn Danmörku í Herning á fimmtudag.

Selfyssingurinn ræddi við Fótbolta.net í aðdraganda leiksins, sem er liður í undankeppni EM 2016.

„Það er alltaf gaman að mæta nágrönnum okkar þannig það verður bara ótrúlega gaman að fá æfingaleik í okkur aftur," sagði Jón Daði við Fótbolta.net í Danmörku í gær.

„Það eru mjög sterkir einstaklingar í þessu liði, það er náttúrulega erfitt að segja hvernig þeir munu leggja upp þennan leik, þeir eru náttúrulega komnir með nýjan þjálfara og það er smá óljóst varðandi það. Við erum fyrst og fremst að hugsa um okkur sjálfa og ef við gerum það geta þetta orðið jákvæð úrslit hjá Danmörku."

Jón Daði hefur stimplað sig vel inn í lið Kaiserslautern í Þýskalandi, en liðið spilar í næst efstu deild. Hann kom til félagsins í janúar frá Viking.

„Maður finnur fyrir að maður er mikilvægur liðinu og er að byrja alla leiki og spila vel persónulega. Það er búið að vera smá erfitt hjá liðinu, við höfum ekki verið að standast væntingar, en ég er ansi jákvæður á að það breytist," segir Jón Daði, sem segir talsverðan mun á að búa í Þýskalandi eða Noregi.

„Þetta er svo rosalega stórt land, maður gleymir því stundum að það eru 80 milljónir manns þarna. Það er svakalegur fótboltaáhugi, ekki bara í Bundesligunni heldur líka Bundesligu 2 og jafnvel 3," segir Jón Daði.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner