Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 23. maí 2015 09:30
Stefán Haukur
Sherwood vonast til að halda Vlaar
Mynd: Vlaar
Tim Sherwood, þjálfari Aston Villa, hefur tjáð blaðamönnum að Ron Vlaar vilji vera áfram hjá félaginu þrátt fyrir áhuga frá mörgum stórum félögum.

Hollenski landsliðsmaðurinn var líklegur til að fara til stærra liðs í sumar eftir HM en hann hélt sig hjá Aston Villa og nú lítur svo út að þannig verði það áfram.

„Ég hef sagt honum að ég vilji hafa hann áfram og hann hefur sagt mér að hann vilji vera hér áfram," sagði Sherwood.

„Hann mun tala við umboðsmann sinn og eigandann en ég er viss um að hann muni vera hér á næsta tímabili," bætti hann við.
Athugasemdir
banner
banner