Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mán 23. maí 2016 22:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Stjörnuvelli
Davíð Þór: Hefði viljað fleiri stig á móti stóru liðunum
Davíð Þór.
Davíð Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH, var svekktur eftir 1-1 jafntefli á móti Stjörnunni í kvöld.

FH var marki yfir þegar skammt var til leiksloka en þá jafnaði Hilmar Árni Halldórsson fyrir Stjörnuna og þar við sat.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  1 FH

„Við erum svekktir með það, mér fannst við vera með fín tök á leiknum. Þeir pressuðu okkur aðeins undir lokin sem er eðlilegt en við getum sjálfum okkur um kennt."

Hann er sérstaklega ósáttur við að FH hafi fengið á sig mark svona seint. Honum fannst líka brotið á FH-ing skömmu áður þar sem ekki var dæmt.

„Við erum með það reynslumikið lið að við eigum ekki að klúðra því. Við fáum á okkur upphlaup en það er spurning hvort, annars mjög góður, dómari leiksins hefði ekki átt að dæma."

FH hefur tapað stigum á móti KR og Stjörnunni og er Davíð ósáttur við að FH hefur ekki náð að vinna hin stærri liðin í deildinni.

„Ég hefði viljað fá fleiri stig á móti þessum stóru liðum en við verðum að vinna hina leikina í staðin."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner