Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. maí 2017 14:30
Magnús Már Einarsson
Harry Kewell tekur við Crawley (Staðfest)
Harry Kewell.
Harry Kewell.
Mynd: Getty Images
Harry Kewell, fyrrum kantmaður Leeds og Liverpool, hefur verið ráðinn stjóri Crawley Town í ensku D-deildinni.

Kewell, sem er fyrrum landsliðsmaður Ástralíu lagði skóna á hilluna árið 2014.

Hinn 38 ára gamli Kewell var ráðinn þjálfari U23 ára liðs Watford sumarið 2015 en hann hætti þar í vetur.

Hann hefur nú tekið við Crawley af Dermot Drummy. Crawley endaði í 19. sæti í ensku D-deildinni á nýliðnu tímabili en liðið á dyggan stuðningsmannahóp á Íslandi.

„Í starfsviðtalinu sýndi Harry okkur mikla ásríðu og það er það sem félagið þarf," sagði Selim Gaygusuz yfirmaður fótboltamála hjá Crawley.
Athugasemdir
banner
banner