Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 24. júlí 2016 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Giggs: Ég er búinn að fá tvö tilboð
Ryan Giggs með Sir Alex Ferguson
Ryan Giggs með Sir Alex Ferguson
Mynd: Getty Images
Ryan Giggs getur ekki beðiðið eftir að hefja þjálfaraferill sinn og segist hann hafa fengið tilboð eftir að hafa yfirgefið Manchester Untied á dögunum.

Hinn 42 ára goðsögn United, var í tvö ár sem aðstoðarmaður Louis van Gaal hjá félaginu en hann hætti eftir að Jose Mourinho tók við.

„Ég er búinn að fá tvö tilboð en þau voru ekki merkileg og það voru ekki störf sem aðalþjálfari. Fyrir mánuði vissi ég ekki að ég væri að fara að yfirgefa United og þetta er lítill gluggi. Liðin eru komin með þjálfarana sína."

„Störf í þjálfun eiga það til að vera stutt og hver veit hvað gerist næst," sagði Giggs.
Athugasemdir
banner
banner