Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 24. júlí 2016 16:02
Magnús Már Einarsson
Marko Perkovic í Víking R. (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Víkingur R. hefur samið við varnarmanninn Marko Perkovic en hann er kominn með leikheimild með liðinu.

Marko getur því leikið sinn fyrsta leik með Víkingi gegn KR annað kvöld.

Hinn 24 ára gamli Marko æfði með Víkingi í síðustu viku og í kjölfarið ákvað félagið að semja við hann.

Marko er Króati en hann hefur undanfarið spilað í Slóveníu.

Víkingur R. lagði Þrótt 2-0 í Pepsi-deildinni á mánudag en liðið er með 15 stig í 7. sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner