Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 24. desember 2017 09:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Buffon hættir eftir tímabilið - Tilbúinn að spila 80 ára ef það þarf
Gianluigi Buffon hættir í vor eftir frábæran feril.
Gianluigi Buffon hættir í vor eftir frábæran feril.
Mynd: Getty Images
Gianluigi Buffon markmaður Juventus ætlar að leggja hanskana á hilluna eftir tímabilið en þessi magnaði markvörður er orðinn 39 ára gamall og verður fertugur í janúar.

Buffon ætlar sér ekki að hætta spila fótbolta þrátt fyrir að hann ætli að hætta sem atvinnumaður á næsta ári.

„Ég bara veit ekki hvernig ég á að svara þessum spurningum í sambandi við það að ég sé að fara hætta spila fótbolta. Mun ég hætta að spila? mun ég ekki hætta?"

„Ég mun mjög líklega hætta í vor, en ég mun engu að síðar alltaf vera tilbúinn til að hjálpa bæði Juventus eða landsliðinu."

„Þó að ég væri áttræður, og það væri enginn markvörður til taks, þá ættu þeir að hringja í mig. Ég myndi vera fljótur að koma mér á stað og fylla í skarðið," sagði Gianluigi Buffon.
Athugasemdir
banner
banner
banner