Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 25. maí 2015 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Klopp kvaddi stuðningsmenn Dortmund
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp kvaddi stuðningsmenn og leikmenn Borussia Dortmund á hjartnæman hátt eftir 3-2 sigur Dortmund á Werder Bremen í lokaumferð þýsku deildarinnar.

Klopp gerði magnaða hluti hjá Dortmund í þau sjö ár sem hann var við stjórnvölinn og er elskaður og dáður af bæði stuðningsmönnum, leikmönnum og öðrum starfsmönnum félagsins.

Klopp vildi ekki halda ræðuna fyrir framan fólk á rauntíma til að fara ekki að gráta fyrir framan leikvang fullan af fólki eins og gerðist þegar hann kvaddi Mainz á sínum tíma.

Hér fyrir neðan má sjá kveðju Klopp sem var sýnd á risaskjá á heimavelli Dortmund. Kveðjan er á þýsku með enskum texta.


Athugasemdir
banner
banner