Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 25. maí 2017 22:41
Lárus Ingi Magnússon
Laugi: Eigum ekki að fá á okkur tvö mörk
Guðlaugur Baldursson.
Guðlaugur Baldursson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er svekktur að hafa ekki tekið þrjú stig hérna," sagði Guðlaugur Baldursson þjálfari Keflavíkur eftir 2-2 jafntefli við Selfoss á heimavelli í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 2 -  2 Selfoss

„Við gerum þá kröfu á okkur að við náum í þrjú stig hérna á heimavelli og við eigum heldur ekki að fá á okkur tvö mörk, með fullri virðingu fyrir Selfoss liðinu sem er gott lið. Við eigum að gera betur í mörkunum sem við fáum á okkur."

Varnarmennirnir Hafþór Þrastarson og Sigurður Eyberg Guðlaugsson voru í leikbanni hjá Selfossi. Keflavík lét sóknarmanninn skæða Jeppe Hansen sækja meira á Óttar Guðlaugsson en hinn reynda Andy Pew í vörninni.

„Við vissum að það væru vandræði í varnarlínunni hjá Selfossi. Við vissum ekki hver kæmi inn en ákváðum að keyra meira á það sem væri nýtt. Það virkaði ágætlega, þannig var það með ráðum gert að fara meira á hægri varnarmann Selfoss."

Nánar er rætt við Lauga í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner